Aukasýning á Mjallhvíti og dvergunum sjö í dag
Í dag klukkan 17 verður aukasýning á leikritinu Mjallhvít og dvergarnir sjö, í flutningi 10. bekkjar Árskóla, í Félagsheimilinu Bifröst. Uppsetningin er í leikstjórn Guðbrands Ægis Ásbjörnssonar.
„Mjallhvít er ofsótt af afbrýðisamri stjúpmóður sinni, drottningunni, og leitar skjóls úti í skógi hjá sjö dvergum. Drottningin gefur Mjallhvíti eitrað epli, en prinsinn finnur hana og vekur hana af dvala,“ segir um söguþráð leikritsins eftir hinu sívinsæla Grímsævintýri.
Venju samkvæmt er mikið lagt í sýningu 10. bekkjar, stífar æfingar eru að baki og mikið hefur verið lagt í búninga og sviðsmynd til að hafa umgjörðina sem glæsilegasta. Á frumsýningunni stóðu leikarar sig með prýði og Anna Margrét Hörpudóttir fór á kostum sem hin illa drottning.
Miðaverð er kr. 500 fyrir 5 ára og yngri, kr. 1000 fyrir grunnskólanemendur og kr. 2000 fyrir fullorðna. Miðapantanir eru í síma 453-5216. Vakin er athygli á því að ekki er tekið við greiðslukortum.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.