Árskólanemendur á hestanámskeiði á Hólum
feykir.is
Skagafjörður, Hestar
17.03.2009
kl. 14.51
Þessa dagana eru 13 nemendur 9. bekkjar á fjögurra daga hestanámskeiði á Hólum í Hjaltadal. Hestanámskeiðið er valgrein hjá nemendum og er samstarfsverkefni Árskóla og Hólaskóla.
Námskeiðið er liður í æfingakennslu 1. árs nemenda á Hrossabraut Hólaskóla þar sem nemendur fá tækifæri til að æfa sig í að kenna byrjendum og/eða aðeins vönum hestamennsku. Kennd eru bæði bókleg og verkleg atriði sem tengjast hestum, hestahaldi og því að vera góður hestamaður.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.