30.000 gestir í Glaumbæ

Metfjöldi ferðamanna hefur sótt Byggðasafnið í Glaumbæ heim í sumar og stefnir í að gestir verði vel yfir 30.000. Á fimmta þúsund gesta hafa sótt Minjahúsið á Sauðárkróki heim en þar hefur verið rekin upplýsingamiðstöð í sumar.

Á fundi menningar- og kynningarnefndar fyrir helgi var rætt um samstarf safnsins við aðra aðila s.s. Vesturfarasetrið á Hofsósi og Sögusetur íslenska hestsins og var forstöðumanni Byggðasafnsins falið að ræða við forsvarsmenn Vesturfarasetursins á Hofsósi um framtíð sýninga og samstarfs milli Byggðasafnsins og Vesturfarasetursins.

Ennfremur var formanni nefndarinnar falið að taka upp viðræður við rektor Hólaskóla og Menntamálaráðherra um samstarf þessara aðila varðandi rekstur Söguseturs íslenska hestsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir