UMSS með þrjá fulltrúa á Reykavíkurleikunum
UMSS er með þrjá fulltrúa á Reykjavík International í frjálsum. Reykjavíkurleikarnir eru haldnir til að auka samkeppnishæfni íslenskra íþróttamanna og draga úr ferðakostnaði þeirra með því að búa til einstakan alþjóðlegan viðburð í Reykjavík sem dregur til sín sterka erlenda keppendur. Íþróttamenn þurfa að ná árangri á tímabilinu 1. okt. 2023 – 30. jan 2024 til að komast inn á topplistann.
Fulltrúar UMSS á Reykjavíkurleikunum eru þessi:
Ísak óli Traustason - 60 m og kúluvarp
Súsanna Guðlaug Halldórsdóttir - 60 m og 800 m
Sveinbiörn Óli Svavarsson - 60 m
Feykir óskar þeim innilega til hamingju með árangurinn og góðs gengis á Reykjavíkurleikunum sem fram fer sunnudaginn 4.febrúar og verður mótið sýnt beint á RÚV frá kl. 14:00.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.