Skerða gæti þurft þjónustu sökum manneklu
Á síðasta fundi sveitarstjórnar Skagafjarðar var fjallað um stöðu sumarafleysinga í þjónustu við fatlað fólk á Norðurlandi vestra og eldra fólks í Skagafirði. Fram kemur í frétt á netsíðu Skagafjarðar þá vantar enn níu starfsmenn í afleysingar í hin ýmsu störf á öllum starfsstöðum málefna fatlaðs fólks og eldra fólks á Sauðárkróki og Hvammstanga. Um lögbundna mikilvæga þjónustu er að ræða og því mjög alvarlegt að ekki hafi tekist að fá fólk til starfa.
Mikil vöntun er til dæmis í búsetukjarna fyrir fatlað fólk, Iðju dagþjónustu og stuðnings- og stoðþjónustu fyrir eldra fólk s.s. dagdvöl aldraðra og heimaþjónustu. Ljóst er að skerða þarf þjónustu, s.s. heimaþjónustu og dagdvöl aldraðra í Skagafirði í sumar ef ekki tekst að manna afleysingar. Einnig er í skoðun hvort loka þurfi dagdvöl aldraðra tímabundið í sumar. Miðað við núverandi stöðu er fyrirséð að starfsfólk muni ekki hafa tök á því að taka fullt sumarorlof fimmta sumarið í röð.
Erfitt er að ráða í hvað veldur því að ekki næst að ráða í auglýst störf, sem eru öll gefandi og vel borguð, með möguleika á sveigjanlegum vinnutíma og stöðuhlutfalli.
Hægt er að kynna sér störf í boði og sækja um störf hjá Skagafirði hér á heimasíðunni.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.