Samningar framlengdir við Fab Lab-smiðjurnar á Íslandi um þrjú ár
Á heimasíðu Sjórnarráðsins segir að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hafi ákveðið að framlengja samninga ráðuneytanna við Fab Lab-smiðjurnar á Íslandi um þrjú ár. Samhliða verða framlögin hækkuð um samtals 91 m.kr. á samningstímabilinu, eða úr 324 m.kr. í 415 m.kr. á næstu þremur árum.
Smiðjurnar þjóna annars vegar tæknimenntun í grunn- og framhaldsskólum og hins vegar íbúum, atvinnulífi og frumkvöðlum. Þær eru vettvangur til nýsköpunar og eru búnar tækjum og tólum til þess að gera frumgerðir og efla þekkingu á stafrænni framleiðslutækni. Smiðjurnar lúta alþjóðlegum skilgreiningum um Fab Lab sem tryggir aðgengi almennings, opnunartíma, ákveðin tækjakost og aðferðarfræði.
Samtals mun háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið styrkja smiðjurnar um 71 m.kr. á ári, eða samtals 235 m.kr. á samningstímabilinu og mennta- og barnamálaráðuneytið, í samstarfi við framhaldsskólana, mun styrkja smiðjurnar um 60 m.kr. á ári, eða samtals um 180 m.kr. á samningatímabilinu. Auk þess mun HVIN styrkja allar smiðjurnar um 2 m.kr. með einskiptisgreiðslu við upphaf samningstímans 2024 sem ætlaðar eru í tækjakaup og uppfærslu tækja- og hugbúnaðar sem og endurmenntun starfsfólks til að tileinka sér nýja tækni.
Samningar við Fab Lab-smiðjur á Íslandi runnu út um síðustu áramót, en grunnurinn að þeim samningum var lagður með þingsályktun Alþingis frá árinu 2018. Að samningunum um Fab Lab-smiðjurnar hafa staðið háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðuneytið, mennta og barnamálaráðuneytið og sveitarfélögin á hverjum stað ásamt ýmsum fyrirtækjum og stofnunum. Ákveðið hefur verið að endurnýja þessa samninga og er unnið að því í samtali við þessa samstarfsaðila, en 11 smiðjur eru styrktar með þessum hætti hringinn í kringum landið. Ráðuneytin hafa lagt mikla áherslu á samstarf við heimamenn á viðkomandi stöðum um fjármögnun og uppbyggingu smiðjanna.
Virkt samstarf er á milli smiðjanna en Fab Lab Ísland heldur utan um fagstarf smiðja, miðlar kunnáttu og reynslu og sækir nýja þekkingu. Umsýsla og utanumhald Fab Lab á Íslandi er í höndum Fab Lab Vestmannaeyja og er það ástæða fyrir því að framlag til smiðjunnar í Vestmannaeyjum hefur verið hærra. Í nýjum samningum verður gert ráð fyrir að forsvar fyrir Fab Lab Ísland fari á milli smiðjanna á hverju samningstímabili.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.