Sameining Húnabyggðar og Skagabyggðar formlega staðfest
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
30.07.2024
kl. 07.15
Innviðaráðuneytið hefur formlega staðfest sameiningu Húnabyggðar og Skagabyggðar og tekur sameiningin gildi 1. ágúst 2024. Tekur sveitarstjórn Húnabyggðar við stjórn hins sameinaða sveitarfélags samdægurs og fer með stjórn þess til loka yfirstandandi kjörtímabils.
Heiti hins sameinaða sveitarfélags skal vera Húnabyggð og mun samþykkt um stjórn og fundarsköp Húnabyggðar nr. 1181/2022, gilda fyrir hið sameinaða sveitarfélag.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.