Riða greindist í einni á á Eiðsstöðum í Blöndudal í Húna- og Skagahólfi
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
11.01.2024
kl. 13.34
Á heimasíðu Mast segir að þann 9. janúar hafi Matvælastofnun borist tilkynning frá Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum, þess efnis að sýni úr sláturfé hafi reynst jákvætt m.t.t. riðuveiki. Um er að ræða eitt jákvætt sýni úr þriggja vetra á frá bænum Eiðsstöðum í Blöndudal í Húna- og Skagahólfi.
Búrekstur á Eiðsstöðum er sameiginlegur með nágrannabænum Guðlaugsstöðum. Heildarfjöldi kinda á bæjunum er um 700 talsins. Riða greindist á Guðlaugsstöðum síðast árið 1993.
Faraldsfræðilegum upplýsingum verður safnað á næstu dögum og féð arfgerðargreint. Í kjölfarið verða teknar ákvarðanir um aðgerðir.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.