Ráðherrar og fjárfestar hitta frumkvöðla á Fjárfestahátíð á Siglufirði
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra opnar fjárfestahátíð Norðanáttar á Siglufirði 31. mars og Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar munu einnig flytja erindi. Fjöldi fagfjárfesta og fjárfestingarjóða hefur boðað komu sína á hátíðina, en þetta er í fyrsta sinn sem haldin er fjárfestahátíð utan höfuðborgarsvæðisins.
Það er nýsköpunarhreyfingin Norðanátt sem stendur fyrir fjárfestahátíðinni á Siglufirði en þangað verður fjárfestum og frumkvöðlum boðið upp á ógleymanlegan dag þar sem frumkvöðlar munu kynna verkefni sín sem snerta orkuskipti, hringrásarhagkerfið eða fullnýtingu auðlinda í takt við áherslur Norðanáttar; matur, orka, vatn.
Í tilkynningu Norðanáttar segir að hreyfingin sé öflugt samstarf aðila á Norðurlandi og vinnur hópurinn í anda nýrrar klasastefnu, þvert á stofnanir samfélagsins og hraðar framþróun og nýsköpun. Að verkefninu koma Eimur, SSNE, SSNV, Nýsköpun í norðri og Hraðið auk samstarfs við stuðningsfyrirtækið RATA.
„Við viljum skapa vettvang á Norðurlandi með því að leiða saman frumkvöðla og fjárfesta og sýna gróskuna og öll tækifærin hér á Norðurlandi,“ segir í í tilkynningu Norðanáttar.
Norðanátt stendur fyrir viðburðum sem styðja við frumkvöðla með hugmyndir á ólíkum stigum. Fyrsti viðburðurinn var lausnamótið Hacking Norðurland sem haldið var í apríl 2021. Því næst fór af stað viðskiptahraðallinn Vaxtarrými síðasta haust þar sem átta teymi fengu stuðning til að vaxa í átta vikur. Nú er komið að stefnumóti á Siglufirði þar sem fjárfestar og frumkvöðlar koma saman og kynnast öflugri nýsköpun og fjárfestingartækifærum á svæðinu. Viðburðurinn er lokaður og eingöngu ætlaður fjárfestum sem horfa til landsbyggðarinnar sem ákjósanlegs fjárfestingakosts.
Dagskrá
10:00 Dagskrá hefst :: Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra fer með ávarp og opnar hátíðina
Ráðstefna um nýtingu auðlinda til nýsköpunar
Guðlaugur Þór Þórðarson - umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra
Þór Sigfússon - framkvæmdastjóri Sjávarklasans
Josh Klein - athafnamaður og frumkvöðull
Hólmfríður Sveinsdóttir - frumkvöðull og eigandi Mergur ráðgjöf
12:00 Hádegismatur og tengslamyndun
13:00 Fjárfestakynningar ::Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir - ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar
Frumkvöðlar kynna sprotafyrirtækin sín - Alor, Green Fuel, Mýsköpun, Icelandic Eider, Ylur hátæknigróðurhús, Hemp Pack, Baðlón á Skagaströnd, Slippurinn, Pelliscol, Grænafl.
15:00 Skipulögð afþreying á Siglufirði - Skíði, yoga og fleira
20:00 Kokteilboð á Segli 67 Brugghúsi
„Fjárfestamótið verður vettvangur fyrir frumkvöðla sem hugsa stórt til þess að kynna sínar hugmyndir og fyrir fjárfestum til þess að greina ný fjárfestingartækifæri á Norðurlandi. Saman ætlum við að finna frekari tækifæri og skapa lausnir framtíðarinnar,“ segir ennfremur í tilkynningu Norðanáttar.
Um sprotafyrirtækin
Hemp Pack
Þróun niðurbrjótanlegs lífplasts úr íslenskum iðnaðarhamp og örverum úr íslenskum jökulám.
Mýsköpun
Mývatns Spirulina: úr krafti eldfjallanna í ofurfæðu.
Alor
Sjálfbærar og umhverfisvænar álrafhlöður og -orkugeymslur.
Icelandic Eider
Hvernig skal umbylta útivistamarkaðnum.
Baðlón
Verkefnið gengur út á að byggja glæsilegt baðlón við sjávarmálið á Skagaströnd með einstöku útsýni yfir opið hafið.
Green fuel
Grænt vetni og ammoníak: Kolefnisfrítt eldsneyti úr vistvænni orku
Grænafl
Rafvæðing strandveiðibáta og tilraunir með frekari orkuskipti í minni fiskiskipum.
Ylur
Hátæknigróðurhús með áherslu á hringrásarhagkerfið.
Slippurinn
Sjávarlón er lausn sem bestar margbreytilegar aðstæður í þvotta- og blæðingarferli bolfisks í fiskiskipum.
Pelliscol
Náttúrulegar húðvörur úr íslensku kollageni.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.