PCR og hraðgreiningarpróf hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Frá og með 14. september verða hraðgreiningapróf í boði á meginstarfstöðvum HSN á Norðurlandi og má sjá upplýsingar um staðsetningu og opnunartíma í töflu á heimasiðu stofnunarinnar.

Fyrirkomulag PCR prófa og hraðprófa hjá HSN eru á þá leið að einkenna og sóttkvíar PCR próf verða í boði á öllum meginstarfstöðvum. 
Ferðamanna PCR próf þegar fólk er að fara erlendis eru einungis í boði á Akureyri og eru pöntuð í gegnum travel.covid.is
Ferðamanna hraðgreiningapróf, fyrir fólk sem er að fara erlendis eða koma að utan, eru á öllum meginstarfstöðvum.

Hraðgreiningapróf nemenda og kennara í skólum og vegna viðburðahalds eru á öllum meginstarfstöðvum. Hraðgreiningapróf vegna smitgátar í skólum fara í gegnum smitrakningarteymi í samvinnu við skólana. Skráning í smitgát er í gegnum smitgat.covid.is. Hraðgreiningapróf vegna viðburðahalds eru pöntuð í gegnum hradprof.covid.is en sá vefur er í vinnslu. Á sumum starfstöðvum þarf einnig að hringja og panta tíma fyrir sýnatöku en þær má sjá á hsn.is.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir