Grásleppuvertíðin hefst á föstudaginn
Það brá til tíðinda þann 22. febrúar þegar Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, undirritaði reglugerð þess efnis, sem staðgengill matvælaráðherra, að flýta grásleppuveiðum. Var þessi ákvörðunin tekin í kjölfar þess að Landssamband smábátaeigenda sendi beiðni um að flýta upphafsdegi til að ná fyrr inn á markað í Danmörku með grásleppuhrognin.
Í beiðninni sem LS sendi frá sér segir að „Megin ástæða beiðninnar er að á undanförnum árum hefur markaður fyrir fersk grásleppuhrogn í Danmörku farið vaxandi. Samfara hefur útflutningur héðan aukist jafnt og þétt og skilað góðu verði til sjómanna og útflytjenda. Markaðurinn er þó enn takmarkaður við tímann frá áramótum og fram að páskum. Þar sem páskar eru mjög snemma í ár, páskadagur 31. mars, er hætt við að íslenskir sjómenn geti ekki nýtt sér eða annað markað fyrir fersk grásleppuhrogn hefjist vertíðin 20. mars. Auk hrogna frá Íslandi selja danskir og sænskir sjómenn hrogn sín inn á þennan markað,“ sagði í bréfinu.
Í ár voru því gerðar nokkrar breytingar miðað við í fyrra og byrjar því veiðin 20 dögum fyrr ásamt því að nú er hver löndun talin sem einn dagur og dregst þannig frá samfelldum dögum sem eru 25 talsins á hvern bát. Þá er skylt að draga grásleppunetin upp eigi síðar en tveimur sólarhringum eftir að þau eru lögð í sjó. Skulu net dregin upp og geymd ef útlit er fyrir að ekki sé hægt að draga næstu tvo sólarhringa. Jafnframt er óheimilt að vera með fleiri net í sjó en svo að hægt sé að draga þau upp í einni veiðiferð.
Í deiglunni er frumvarp um kvótasetningu á grásleppuveiðum en ólíklegt þykir að að frumvarpið fáist afgreitt úr þessu og eru því litlar líkur á að frumvarpið hafi áhrif á grásleppuveiðar á þessu ári.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.