Freyr ráðinn upplýsingafulltrúi Eflingar stéttarfélags

Freyr Rögnvaldsson. MYND AÐSEND
Freyr Rögnvaldsson. MYND AÐSEND

Skagfirðingurinn Freyr Rögnvaldsson hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi Eflingar stéttarfélags. Freyr er stjórnmálafræðingur að mennt, frá Háskóla Íslands og Háskólanum í Lundi. Hann hefur síðustu 17 ár unnið sem blaðamaður á ýmsum fjölmiðlum, meðal annars Heimildinni, Stundinni, DV, Eyjunni, Bændablaðinu og á 24 stundum. Freyr hlaut Blaðamannaverðlaun Blaðamannafélags Íslands árið 2018 fyrir rannsóknarblaðamennsku þegar hann rannsakaði og greindi eignarhald auðmanna á íslenskum bújörðum. Hann hefur þá einnig í tvígang verið tilnefndur til verðlaunanna.

Sömuleiðis hefur Freyr sinnt kynningarstörfum og upplýsingagjöf á sínum starfsferli, meðal annars þegar hann starfaði hjá kynningardeild Bændasamtakanna. Þá var hann upplýsingafulltrúi Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir Alþingiskosningarnar árið 2017.

Freyr er fullur tilhlökkunar yfir því að taka til starfa fyrir félagsfólk Eflingar og verkafólk á Íslandi. „Ég hlakka til að leggja mitt af mörkum í baráttu Eflingarfélaga fyrir bættum kjörum og aðbúnaði, sem og að koma því á framfæri hversu gríðarlega mikilvægt hlutverk félagsfólks Eflingar er í íslensku samfélagi.“

„Ráðning Freys er liður í eflingu samskipta og miðlunar upplýsinga af félagslegu og faglegu starfi Eflingar stéttarfélags. Freyr mun með reynslu sinni reynast félaginu og starfsfólki mikilvægur liðsfélagi í því ferli,“ segir Perla Ösp Ásgeirsdóttir framkvæmdastjóri.

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir að með ráðningu Freys verði enn frekar skerpt á upplýsingagjöf félagsins: „Efling er annað stærsta stéttarfélag landsins og lang stærsta félag verkafólks. Öflug upplýsingagjöf um grundvallarmikilvægi okkar er lykilatriði í baráttu félagsins fyrir efnahagslegu réttlæti.“

Freyr er giftur Snærós Sindradóttur, listfræðingi og fjölmiðlakonu, og eiga þau fjögur börn.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir