Syndum – landsátaks í sundi hefst í dag

Í dag, þriðjudaginn 1. nóvember kl. 10:00, verður landsátakið Syndum sett með formlegum hætti í Laugardalslauginni. Að átakinu stendur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands sem er heilsu- og hvatningarátak í sundi og stendur frá 1.- 30. nóvember.

Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi og nota meðal annars sund til þess. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands greinir frá því að átakið hafi verið formlega sett á laggirnar á sama tíma í fyrra og hafi þátttakan þá verið gríðarlega góð, en alls syntu landsmenn 11,6 hringi í kringum landið.

Syndum - Landsátak í sundi, er viðburður innan Íþróttaviku Evrópu og kemur fram í kynningu sambandsins að markmið Íþróttaviku Evrópu sé að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings.

„Það er margt sem við getum gert til að bæta og viðhalda líkama og sál og allt telur. Íslendingar hafa verið duglegir að stunda sund enda búum við vel að góðum sundlaugum um allt land. Sund er fyrir alla, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi og er tilvalin þjálfunaraðferð sem styrkir hjarta- og æðakerfið, lungu og vöðva líkamans en er einnig frábær og skemmtileg tómstundaiðja sem öll fjölskyldan getur stundað saman.“

Syndum saman í kringum Ísland segir í hvatningarorðum sambandsins en allir skráðir sundmetrar safnast saman og verða sýnilegir á forsíðu www.syndum.is. Þar verður einnig hægt að sjá hversu marga hringi landsmenn hafa synt í kringum Ísland. Á síðunni má jafnframt finna skemmtilegan fróðleik og upplýsingar um allar sundlaugar landsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir