Eldur Smári fer fyrir Lýðræðisflokknum í Norðvesturkjördæmi

Lýðræðisflokkurinn, sem stofnaður var nýverið af forsetaframbjóðandanum Arnari Þór Jónssyni, kynnti í morgun þrjá efstu menn á lista flokksins í hverju kjördæmi fyrir sig ásamt nokkrum af stefnumálum sínum. Hér í Norðvesturkjördæmi er það Eldur Smári Kristinsson, formaður Samtakanna 22, sem skipar efsta sæti listans.

Í öðru sæti er Ágústa Árnadóttir snyrtifræðingur og þriðja sætið skipar Sigurður Bjarnason kerfisfræðingur.

Í tilkynningu frá Lýðræðisflokknum segir að hann hafi verið stofnaður með það markmið að auka einstaklingsfrelsi og draga úr miðstýringu ríkisvaldsins. Flokkurinn leggi áherslu á að tryggja borgurum rétt til að taka sjálfstæðar ákvarðanir um eigið líf, sér í lagi á sviðum efnahags, atvinnumála og menningar. Þá vilji flokkurinn einnig hófsemi í ríkisútgjöldum og vilji að skattalækkanir verði til þess að efla atvinnufrelsi og skapa ný tækifæri í íslensku efnahagslífi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir