Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal valinn í U21 landsliðið í hestaíþróttum

Guðmar og Freyðir frá Leysingjastöðum í úrslitum á Fjórðungsmóti Vesturlands sumarið 2022. Mynd: Kolbrún Grétarsdóttir.
Guðmar og Freyðir frá Leysingjastöðum í úrslitum á Fjórðungsmóti Vesturlands sumarið 2022. Mynd: Kolbrún Grétarsdóttir.

Á heimasíðu Landssambands hestamannafélaga segir að undirbúningur fyrir Norðurlandamótið sé á blússandi siglingu og nú liggur fyrir hvaða knapar munu keppa fyrir Íslands hönd í yngri flokkunum. Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal í Hestamannafélaginu Þytur í Húnaþingi vestra var valinn í hópinn og hefur verið hluti af honum undanfarin ár. 

Þá segir að Íslenska liðið þurfi að mestu leyti að stóla á lánshesta á Norðurlandamótinu og því verði mótið ansi skemmtileg áskorun. Enginn útflutningur var á hestum frá Íslandi frá 12. júlí fram í miðjan ágúst sem gerir það að verkum að einungis einn hestur, sem var fluttur út þann 1. júlí,  verður orðinn fullbólusettur þegar mótið hefst. Liðið þarf því að treysta á hesteigendur í Evrópu til að hjálpa við að hesta liðið og hefur það gengið vel.

Knapar í U21 árs hópnum sem fara á mótið eru á aldrinum 16 - 21 árs og munu þau spreyta sig ýmist einungis í íþróttagreinum mótsins og/eða gæðingakeppnisgreinum mótsins. Í næstu viku verða hestarnir kynntir og keppnisgreinarnar sem parið mun spreyta sig í.
 
Eftirfarandi knapar hafa verið valdir í hópinn:
 
Dagur Sigurðarson, Geysir
Elva Rún Jónsdóttir, Sprettur
Embla Lind Ragnarsdóttir, Léttir
Guðný Dís Jónsdóttir, Sprettur
Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal, Þytur
Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir, Snæfellingur
Hekla Rán Hannesdóttir, Sprettur
Herdís Björg Jóhannsdóttir, Sprettur
Hulda María Sveinbjörnsdóttir, Sprettur
Matthías Sigurðsson, Fákur
Ragnar Bjarki Sveinbjörnsson, Sprettur
Ragnar Snær Viðarsson, Fákur
Selma Leifsdóttir, Fákur
 
Guðmar Hólm var íþróttagarpur há Feykir árið 2022 og má lesa umfjöllunina hér.
 
 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir