Styttist í Unglingalandsmót UMFÍ sem haldið verður í Borgarnesi í ár

Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið um verslunarmannahelgina í Borgarnesi og opnar fyrir skráningu þann 2. júlí. Ungmennasamband Skagafjarðar mun niðurgreiða skráningargjaldið fyrir alla keppendur frá Skagafirði sem eru 9.400 kr. Skráningu lýkur þann 29. júlí en öll ungmenni frá aldrinum 11 til 18 ára geta skráð sig til leiks og er ekki skylirði að vera skráður í ungmenna- eða íþróttafélag. 

Eins og við vitum vel eftir að Unglingalandsmótið hér á Sauðárkróki í fyrra þá er glæsileg dagskrá að vanda á Unglingalandsmótinu en 18 keppnisgreinar verða í boði auk ýmiss konar afþreyingar og skemmtunar fyrir alla fjölskylduna. Þær greinar sem verða í boði í ár eru; Badminton, bogfimi, borðtennis, frjálsar íþróttir, glíma, golf, grasblak, grashandbolti, hestaíþróttir, hjólreiðar, knattspyrna, kökuskreytingar, körfubolti, pílukast, skák, stafsetning, sund og upplestur.

Mótssvæðið verður iðandi af lífi frá morgni til kvölds. Þau segja, Íþróttir á daginn og tónlist á kvöldin. Öll kvöldin verða tónlistarviðburðir þar sem okkar besta tónlistarfólk kemur fram. Fjöldi viðburða fyrir börn yngri en 10 ára verða í boði og allt ókeypis.

Tjaldsvæði fyrir alla fjölskylduna er innifalið í þátttökugjaldi mótsins. Svæðið er staðsett á Kárastöðum sem er rétt utan við Borgarnes. Þeir sem óska eftir aðgengi að rafmagni á tjaldsvæðinu þurfa að ganga frá greiðslu fyrir því um leið og gengið er frá kaupum á þátttökugjaldi. Verð fyrir rafmagn er 4.900 kr. fram til 29. júli. Eftir þann tíma hækkar verð upp í 6.900 kr.

Tjaldsvæði mótsins er skipt upp í svæði eftir íþróttahéruðum. Þátttakendur á tjaldsvæði eru hvattir til þess að merkja við rétt nafn á íþróttahéraði svo mótshaldarar geti raðað tjaldsvæði upp eftir fjölda tjalda/hýsa frá hverju íþróttahéraði.

Á svæðinu verða snyrtingar, rennandi vatn, rafmagn og gæsla frá björgunarsveitum. Strætó mun ganga frá svæðinu að aðal keppnissvæðinu frá kl. 08:30 og fram yfir síðustu keppnisgrein.

Hér er að finna dagskrá keppnisgreina, afþreyingar og skemmtunar fyrir alla daga mótsins.

Nú er bara að taka verslunarmannahelgina frá og fjölmenna í Borgarnes á skemmtilegasta mót ársins!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir