Prjónagleði á Blönduósi dagana 10. - 12. júní

Vakin er athygli á því að á næstkomandi þriðjudagskvöld hittast prjónagraffarar á Blönduósi og ljúka við uppsetningu á verkum sínum á ljósastaura, skilti o.fl. í bænum og sveitunum í kring. Mynd/BÞ
Vakin er athygli á því að á næstkomandi þriðjudagskvöld hittast prjónagraffarar á Blönduósi og ljúka við uppsetningu á verkum sínum á ljósastaura, skilti o.fl. í bænum og sveitunum í kring. Mynd/BÞ

Textílsetur Íslands og samstarfsaðilar munu standa fyrir hátíðinni ,,Prjónagleði”  helgina 10. - 12. júní 2016 í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi.   Prjónagleði hefur það að markmiði að sameina reynda kennara og áhugasamt prjónafólk frá Íslandi sem og erlendis frá til að deila og miðla reynslu, læra eitthvað nýtt og hafa gaman.

Á Prjónagleði verður m.a. boðið upp á: 

  • Setningarathöfn þar sem sjónvarpsmaðurinn Gísli Einarsson stígur á svið og heldur fyrirlestur um íslensku lopapeysuna ásamt því að Héléne Magnússon verður með tískusýningu á hönnun sinni.  
  • Ellefu mismunandi námskeið og þrjá ólíka fyrirlestra.
  • Spunakeppni – koma ull í fat.  
  • Sölubásar í íþróttahúsinu en þar munu Prjónakerling, Húnabúð, Storkurinn, Ríta og Páll Grenigerði, Þingborg,  Amma mús, Auður, norskir Prjónarar, Húnaprjón bjóða til sölu ýmsan varning sem tengist prjóni, svo sem pjónuð klæði, garn, tölur, prjónabækur og margt, margt fleira. Sjón er sögu ríkari. 
  • Veitingasala

Aðgangur að Prjónagleði kostar 2.000 kr. og gildir aðgangsmiði /armband alla helgina.  Hægt verður að kaupa miða á Pjónagleði,  setningarathöfn og á þau námskeið og fyrirlestra sem enn er laust á frá kl. 12:00 á föstudaginn en þá opnar miðasala sem verður í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar. Athugið að aðeins verður hægt að kaupa á auglýstum opnunartíma miðasölu en ekki við inngang viðburða.  

Prjónagleði fær innblástur sinn frá prjónahátíðinni Fanö sem haldin er í Danmörku (www.strikkefestival.dk). Textílsetrið hlaut styrk frá Nordplus 2015 til þess að heimsækja prjónahátíðina í Fanö og hitta þar skipuleggjendur hátíðarinnar.  Þess má geta að skipuleggjendur hátíðarinnar í Fanö verða gestir okkar á Prjónagleði. 

Meðfylgjandi er dagskrá hátíðarinnar, nánari upplýsingar, s.s. lýsing á námskeiðum, fyrirlestrum öðrum viðburðum má finna á heimasíðu Textilseturs Íslands; www.textilsetur.com.

 

 

Tími

Hvar haldið?

Afhending og sala miða

föstud

12:00-18:00

Íþróttahús

Sölusýning og veitingasala

föstud

14:00-18:00

Íþróttahús

Setningarathöfn - Opening ceremony

föstud

20:00-21:30

Félagsheimili

 

 

 

 

Afhending og sala miða

laugard

8:30-18:00

Íþróttahús

Sölusýning og veitingasala

laugard

10:00-18:00

Íþróttahús

Áferðir/prjóntækni - Structure / technique  (Icelandic, Danish)

laugard

9:00-12:00

Blönduskóli

Byrjað á sjali við hnakka - knitted shawl from the neck (Icelandic, English)

laugard

9:00-12:00

Blönduskóli 

Hjaltnesk sjalamynstur - Exploring Shetland Lace  (English)

laugard

9:00-12:00

Blönduskóli

Tilbrigði við stroffprjón - Ribbing with a twist   (Icelandic, English)

laugard

9:00-12:00

Blönduskóli

Vefprjón - Weave knitting  (Icelandic)

laugard

9:00-12:00

Blönduskóli

Vettlingar prjónaðir frá hlið - Mittens knitted from side to side  (Icelandic, English)

laugard

9:00-12:00

Blönduskóli

 

 

 

 

Litirnir á Fanø - The colors of Fanø  (English)

laugard

12:00-13:30

Félagsheimili

Spunakeppni - koma ull í fat

laugard

14:00 - ?

Íþróttahús

 

 

 

 

Tvöfalt prjón - Double knit  (Icelandic, Danish)

laugard

14:00-17:00

Blönduskóli

Prjónum, skreytum og sköpum - Knitting, decorating and creating (Icelandic, Lithuanian)

laugard

14:00-17:00

Blönduskóli

Prjónavíman - The Knitting Spell  (Icelandic, English)

laugard

17:00-18:00

Blönduskóli

 

 

 

 

Hátíðarkvöldverður - Reception dinner

laugard

20:00-22:30

Félagsheimili

 

 

 

 

Afhending og sala miða

sunnud

8:30-12:00

Íþróttahús

Sölusýning og veitingasala

sunnud

9:00-12:00

Íþróttahús

Frágangur á prjóni - To make up  (Icelandic, Danish)

sunnud

9:00-12:00

Blönduskóli

Hjaltneskt mynsturprjón - Fair Isle Knitting  (English)

sunnud

9:00-12:00

Blönduskóli

Illeppar með rósaprjóni - Traditional Icelandic intarsia   (Icelandic/English)

sunnud

9:00-12:00

Blönduskóli

Jurtalitunarhefð á Íslandi - Traditional Icelandic Yarn Dyeing (Icelandic/English)

sunnud

12:30-14:00

Blönduskóli

Föstudaginn 10. júní kl. 17:00 í Kvennaskólanum á Blönduósi:  Iðunn Vignisdóttir  verður  með fyrirlestur um Kvennaskólann  og að honum loknum verður Jóhanna Pálmadóttir með kynningu á Vatnsdælureflinum.  Þá verður einnig boðið upp á leiðsögn um Kvennaskólahúsið.  

Aðgangseyrir 1000 kr. – sem greiðst á staðnum.

Þá viljum vekja athygli á að hægt er að skoða Minjastofur og Vatnsdælurefil í Kvennaskólanum alla helgina milli kl. 13:00 – 17:00. 

Einnig er Heimilisiðnaðarsafnið opið alla þessa daga frá kl. 10:00 – 17:00.

/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir