Vísnakeppni í Sæluviku

Hreinn Guðvarðason sigraði árið 2006 hér tekur hann við viðurkenningu úr hendi Maríu Lóu Friðjónsdóttur

Enn sem fyrr stendur Safnahús Skagfirðinga fyrir vísnakeppni í Sæluviku. Fyrsta vísnakeppnin var haldin árið 1976 að frumkvæði Magnúsar Bjarnasonar kennara. Safnahúsið hefur síðustu ár staðið fyrir þessari keppni og verða úrslit kynnt í Safnahúsinu 26. apríl kl. 16:00.

Að venju verða veitt vegleg verðlaun fyrir besta botn og bestu vísu um ákveðið tilefni. Þau sem hyggjast taka þátt í keppninni um bestu vísuna eru beðin um að svara spurningunni: Hver er framtíð lands og þjóðar? Þá eru gefnir þrír fyrripartar og eru veitt verðlaun fyrir besta botninn:

Ég hef engri útrás sinnt
arðinn fengið rýran.

Bankakerfið hrundi í haust
heiðri glatar þjóðin.

Nú er vetur burtu úr bæ
bráðum getur sungið lóa.

Vísur og botnar skulu merktir dulnefni, en nafn höfundar fylgi með í lokuðu bréfi. Úrlausnir þurfa að hafa borist Safnahúsi Skagfirðinga við Faxatorg, 550 Sauðárkróki í síðasta lagi föstudaginn 24. apríl. Einnig er hægt að senda úrlausnir í netfangið skjalasafn@skagafjörður.is og verður þá svo um hnúta búið að dómnefnd sjái ekki hverjir eru höfundar vísnanna.

Enn sem fyrr veitir Sparisjóður Skagafjarðar verðlaun fyrir besta botn og bestu vísu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir