Þórunn Ýr Elíasdóttir ráðin kaupfélagsstjóri KVH

Stjórn Kaupfélags Vestur-Húnvetninga hefur ráðið Þórunni Ýr Elíasdóttur í starf kaupfélagsstjóra Kaupfélags Vestur-Húnvetninga en fyrr í haust sagði Björn Líndal Traustason upp störfum. Þórunn mun hefja störf á fyrstu mánuðum nýs árs.

Í frétt á vef KVH segir: „Þórunn hefur víðtæka reynslu af uppbyggingu og rekstri fyrirtækja og stofnana og var hún í yfir 30 ár rekstrar- og síðar fjármálastjóri hjá heildversluninni Kemis ehf sem var fjölskyldufyrirtæki í eigu foreldra hennar. Einnig átti hún og rak blómaverslun í Breiðholtinu og var svo skrifstofu- og fjármálastjóri hjá Samhjálp félagasamtökum. Undanfarin ár hefur hún sinnt bókhaldsstörfum í ráðhúsi Húnaþings vestra. Þórunn er útskrifuð með diplómu í fjármálum og rekstri frá Háskólanum í Reykjavík og á að baki hin ýmsu viðurkenndu námskeið í markaðsmálum, tölvu- og tæknimálum. Einnig er hún útskrifuð frá Ráðgjafaskóla Íslands.

Haft er eftir Þórunni Ýr að KVH standi frammi fyrir ýmsum breytingum „... eins og flestir hafa tekið eftir og eins hafa hraði og breytingar í viðskiptalífinu og samfélaginu öllu búið til nýjar áskoranir fyrir tilvist kaupfélagsins sem á sér farsæla sögu frá upphafi síðustu aldar. Ég tek við starfinu með eftirvæntingu og hlakka til að bætast í starfsmannahóp KVH og takast á við allar þær áskoranir sem starfinu fylgja. Þakklæti fyrir sýnt traust á verkefninu er mér líka ofarlega í huga á þessum tímamótum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir