Soffía og Pétur Ben með tónleika á Hótel Laugarbakka

Soffía og Pétur Ben halda tónleika á Hótel Laugarbakka laugardagskvöldið 6. júlí. Með þeim í för verður bassaleikarinn og söngkonan Fríða Dís og slagverksleikarinn Magnús Trygvason Eliassen.

Soffía er söngkona, gítarleikari og lagahöfundur og semur og flytur sveitaskotna tónlist eða „alternative country“. Pétur Ben er kvikmyndatónskáld, pródúser og lagahöfundur og saman munu þau búa til frábæra kvöldstund með blöndu af tónlist þeirra beggja.

Þess má geta að þau verða síðan á Græna hattinum á Akureyri á sunnudagskvöldið. Miðar eru seldir á www.midix.is og á staðnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir