Jólakrossgáta Feykis
Frábær þátttaka var í jólakrossgátu Feykis sem birt var í síðasta blaði liðins árs. „Jólakveðjublaðinu“ og þökkum við ykkur sem tókuð þátt kærlega fyrir. Þrír voru dregnir út og fá að launum bók og súkkulaði. Vinningshafar voru að þessu sinni sem hér segir:
Gunnar Þór Sveinsson
Sigurlaug H. Maronsdóttir
Sveinfríður Jónsdóttir
Vinningshafar hafa verið látin vita. Til gamans var haft samband við fráfarandi ritstjóra og höfund mynda og kross gátanna, Pál Friðriksson og hann spurður út í hversu margir væru alla jafna að senda inn lausnir. Sú breyta varð á þessu ári að dæmið hefur snúist við. Á þriðja tug hafa venjulega verið að senda inn lausn við myndagátu og eitthvað í kringum fjórða tuginn við krossgátu, aftur á móti var það öfugt farið þetta árið.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.