Trésmiðjan Stígandi ehf. auglýsir eftir framkvæmdastjóra
Trésmiðjan Stígandi ehf. auglýsir laust til umsóknar starf framkvæmdastjóra fyrirtækisins.
Um er að ræða spennandi stjórnunarstarf í gamalgrónu fyrirtæki í byggingaiðnaðinum. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til og með 21. ágúst.
Helstu viðfangsefni og ábyrgð:
- Ábyrgð á daglegum rekstri og stjórnun fyrirtækisins
- Öflun, skipulagning og stýring verkefna
- Stefnumótun og áætlunargerð
- Ábyrgð á góðum samskiptum við viðskiptavini, starfsmenn og birgja
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Nám og reynsla á sviði mannvirkjagerðar
- Reynsla af stjórnun og rekstri
- Reynsla af stefnumótun og áætlunargerð er æskilegt
- Frumkvæði, drifkraftur og metnaður
- Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
- Leiðtogahæfi og jákvætt viðmót
- Heiðarlegt og gott orðspor
Trésmiðjan Stígandi á Blönduósi er eitt ef elstu fyrirtækjum í mannvirkjagerð á landinu. Hjá okkur starfa á bilinu 15-20 starfsmenn, bæði á innréttingaverkstæði og í viðhalds- og framkvæmdadeild.
Upplýsingar veitir Guðmundur Arnar Sigurjónsson (gummi@stigandihf.is) í síma 855-5575.
Trésmiðjan Stígandi ehf. auglýsir einnig eftir starfsmanni á lager og skrifstofu.
Helstu viðfangsefni og ábyrgð:
- Símasvörun á opnunartíma
- Skráning á efni og vinnu í verkbókhald
- Efnispantanir og utanumhald á vörum á lager
- Utanumhald á verkfærum og tækjabúnaði fyrirtækisins
- Önnur tilfallandi sambærileg skrifstofuverk
Menntunar-og hæfnikröfur
- Reynsla af byggingariðnaðinum er kostur
- Reynsla af bókhaldi
- Gott skipulag
- Góð þekking á Microsoft Office
- Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
Trésmiðjan Stígandi á Blönduósi er eitt ef elstu fyrirtækjum í mannvirkjagerð á landinu. Hjá okkur starfa á bilinu 15-20 starfsmenn, bæði á innréttingaverkstæði og í viðhalds- og framkvæmdadeild.
Upplýsingar veitir Guðmundur Arnar Sigurjónsson (gummi@stigandihf.is) í síma 855-5575.
/Fréttatilkynning
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.