Rúnar Már skaut KR út úr Evrópudeildinni
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
22.07.2016
kl. 13.06
Skagfirðingurinn Rúnar Már Sigurjónsson skoraði bæði mörk Grasshoppers í sigrið liðsins gegn KR í Evrópudeildinni í gær, 2-1. Leikurinn fór fram á heimavell svissneska liðsins. Kemur þetta fram á ksi.is
Fyrri leikurinn, sem fram fór Alvogen vellinum, fór 3-3 og því samalögð úrslit 5-4 og KR úr leik.
Morten Beck Andersen átti heiðurinn að marki KR í leiknum en Rúnar Már, sem nýlega gekk til liðs við Grasshoppers, skoraði bæði mörk Grasshoppers eins og fram kemur að ofan. Eftir þessi úrslit er ljós að öll íslensku liðin eru fallin úr Evrópukeppnum í ár.
Væntanlegt er viðtal við Rúnar Má í Feyki í ágúst.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.