Vill byggja fimm hæða blokk á Hvammstanga
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla
10.01.2018
kl. 08.15
Engilbert Runólfsson verktaki mun kynna hugmyndir sínar um byggingu fimm hæða 20 íbúða húss að Höfðabraut 28 á Hvammstanga á íbúafundi sem boðaður hefur verið nk. mánudag 15. janúar í félagsheimili staðarins.
Auk kynningar Engilberts mun Óskar Örn Gunnarsson skipulagsfræðingur hjá Landmótun sf. kynna deiliskipulagstillögu hafnarsvæðisins á Hvammstanga sem mun vera aðalviðfangsefni fundarins. Þeir Óskar og Engilbert sitja svo fyrir svörum ásamt fulltrúa sveitarstjórnar og byggingarfulltrúa.
Sjá nánar á heimasíðu Húnaþings vestra.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.