Lokaþáttur Fyrirmyndarfrumkvöðla - smelltu hér

Lokaþáttur Fyrirmyndarfrumkvöðla verður sýndur í dag beint frá Sauðárkróki á Feyki.is og hefst útsendingin innan skamms. Sent verður út frá stúdíói SkottaFilm og þangað mæta fulltrúar fyrirtækjanna sem fjallað hefur verið um í þessari þáttaröð og góðir gestir til að um ræða frumkvöðlastarf.

Gestirnir eru Laufey Kristín Skúladóttir verkefnastjóri hjá sveitarfélaginu Skagafirði og Unnur Valborg Hilmarsdóttir stjórnendamarkþjálfi. Þórður Erlingsson framkvæmdastjóri InExchange í Svíþjóð ætlaði að vera með okkur í gegnum Skype en ekki verður úr því vegna tæknilegra vandamála. Rætt verður um verkefni þátttakendanna og frumkvöðlastarf vítt og breitt.

Fyrirmyndarfrumkvöðlar er samstarfsverkefni Feykis og Skottu kvikmyndafjelags. Þáttagerðin er í höndum Árna Gunnarssonar kvikmyndagerðarmanns, Berglindar Þorsteinsdóttur, ritstjóra Feykis og Kristínar Einarsdóttur, blaðamanns hjá Feyki. Þáttarstjórnendur eru Berglind og Kristín en um upptökur og eftirvinnslu sér Árni Gunnarsson. 

Þættina sex má sjá hér á Feyki.is og útsendingin hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir