Bletturinn náði takmarki sínu á Karolina Fund
Við sögðum frá því hér á Feyki þann 7. júní sl., að hópfjármögnun væri hafin á Karolina Fund vegna viðhalds á Blettinum á Hvammstanga.
Bletturinn er skógrækt sem Ingibjörg Pálsdóttir og Sigurður Helgi Eiríksson, búsett á Hvammstanga, byrjuðu á árið 1958. Þau hafa unnið í honum linnulaust síðan en sökum aldurs hefur þetta áhugamál ekki fengið að vaxa og dafna síðustu ár í verki og þarfnast Bletturinn mikils viðhalds og umhirðu.
Takmarkið var að ná að safna 8.500 evrum, eða rúmri milljón íslenskra króna, á Karolina Fund og á miðnætti í gær þegar söfnuninni lauk, var takmarkinu náð. Nýta á fjármagnið í að gera svæðið aðgengilegra fyrir gesti og gangandi. Gera þarf við göngustíga, lagfæra brýr yfir læki, bæta klósettaðstöðu og sláttur- og dráttarvélar þarfnast viðgerða.
/Lee Ann
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.