Forval VG
Kæru félagar nú er hafin kosning í forvali Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi Alþingingiskosningar. Ég býð mig fram til að leiða listann í 1. sæti.
Mikilvægt er að svæðið, kjördæmið og landsbyggðin öll hafi öfluga talsmenn á Alþingi. Ég tel mig hafa góða reynslu af því að vinna að málum landsbyggðarinnar bæði á héraðs- og landsvísu. Hins vegar liggur fyrir að mörgum hlutum í héraði kemur maður ekki áfram nema með því að vinna að á landsvísu og hafa áhrif á löggjöf og fjárveitingar. Maður þarf að keyra vegina sem maður talar fyrir. Hitta fólkið sem maður ætlar að vinna fyrir til að þekkja og skapa nánd við aðstæður þess og hagsmuni. Það hef ég gert og mun svo sannarlega gera fái ég traust til að leiða lista VG í Norðvesturkjördæmi.
Ég bið um stuðning ykkar lesendur góðir sem hafið nú forvalsseðlana á borðum ykkar.
Með baráttukveðjum
Bjarni Jónsson
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.