Skúli Eggert Þórðarson nýr ráðuneytisstjóri menningar- og viðskiptaráðuneytis

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamála-, menningar- og viðskiptaráðherra hefur skipað Skúla Eggert Þórðarson ráðuneytisstjóra nýs menningar- og viðskiptaráðuneytis frá 1. febrúar nk. Skúli Eggert er lögfræðingur að mennt og hefur gegnt embætti ríkisendurskoðanda frá árinu 2018. Hann var áður ríkisskattstjóri frá 2006 og fram að því skattrannsóknarstjóri frá árinu 1993.

Á heimasíðu Stjórnarráðsins kemur fram að ákvörðun um flutning Skúla Eggerts í embætti ráðuneytisstjóra sé tekin á grundvelli laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins þar sem kveðið er á um heimild til flutnings embættismanna ríkisins milli starfa. Það er sem skipar í embættið.

„Samkvæmt tillögu til þingsályktunar um breytta skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, sem samþykkt var á Alþingi í dag, verður atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið lagt niður nú um mánaðarmótin. Verkefni þess munu færast að mestu í tvö ný ráðuneyti; menningar- og viðskiptaráðuneyti þar sem mætast málaflokkar menningar, viðskipta og ferðaþjónustu og matvælaráðuneytið með málaflokkum sjávarútvegs, fiskeldis, landbúnaðar, skógræktar og landgræðslu. Þrír málaflokkar færast til annarra ráðuneyta, en orkumál verða í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti og iðnaðar- og nýsköpunarmál í háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti,“ segir á stjornarradid.is.

Þá verður Benedikt Árnason, ráðuneytisstjóri atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins ráðuneytisstjóri í nýju matvælaráðuneyti.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir er ráðherra ferðamála, menningar- og viðskipta og Svandís Svavarsdóttir er matvælaráðherra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir