Skagfirðingar funda í Vestur-Húnavatnssýslu

Útgáfunefnd Byggðasögu Skagfirðinga á bókasafninu á Hvammstanga en þarna eru Sigurlaug Ebba Kristjánsdóttir, Gunnar Rögnvaldsson og Bjarni Maronsson formaður. Myndina tók ritstjórinn sjálfur, Hjalti Páls.

Nú styttist í útkomu síðasta bindis Byggðasögu Skagafjarðar sem er það 10. í röðinni og er væntanlega á leið úr prentsmiðjunni í þessum orðum. Samkvæmt upplýsingum tíðindamanns Feykis í Vestur-Húnavatnssýslu þá þótti það á hinn bóginn nokkrum tíðindum sæta þegar útgáfustjórn og ritstjóri Byggðasögu Skagafjarðar sáust funda á bókasafninu á Hvammstanga fyrir stuttu.

Í lokabindinu er fjallað um Hofsós, Grafarós, Haganesvík og Drangey og Málmey auk þess sem ýmsar upplýsingar úr fyrri bindum eru uppfærðar eða leiðréttar.

Byggðasagan ætti að öllu jöfnu að vera tilbúin til afgreiðslu seinni partinn í nóvember.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir