Opið hús í Útibúinu, skrifstofusetri á Hvammstanga

Á dögunum greindi SSNV frá því að búið væri að velja nafn á skrifstofusetrið sem sett hefur verið upp í húsnæði Landsbankans, Höfðabraut 6, á Hvammstanga. ÚTIBÚIÐ er nafnið var valið eftir að óskað hafði verið eftir tillögum að nafni.

“ÚTIBÚIÐ er nafnið sem varð ofan á - enda skemmtileg vísun, annars vegar í þá starfsemi sem verið hefur í húsnæðinu um árabil og verður áfram. Hins vegar vísar nafnið í að fyrirtæki og stofnanir geta sett upp sín útibú í aðstöðunni,” segir á vef SSNV en skrifstofur SSNV hafa verið fluttar í Útibúið.

SSNV býður fólki á opið hús í Útibúinu á morgun, 3. Júní frá 16-18.

“Þar gefst tækifæri til að skoða aðstöðuna og kynna sér starfsemi SSNV. Verið öll velkomin - til að hægt verði að fylgja öllum sóttvarnarreglum vinsamlegast meldið ykkur á viðburðinn hér á fb https://fb.me/e/BiIfDMPJ”, segir á vef SSNV.

/SMH

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir