Lömbin talsvert vænni nú en fyrir ári

Sláturhúsið á Hvammstanga. SKJÁSKOT AF RÚV.IS
Sláturhúsið á Hvammstanga. SKJÁSKOT AF RÚV.IS

Rúv.is sagði frá því nú fyrir helgi að sláturtíð er nú víðast hvar að en í einhverjum sláturhúsum verður þó slátrað fram í nóvember. Hjá sláturhúsinu á Hvammstanga er meðalþyngd dilka talsvert hærri en í fyrrahaust og það þakkar sláturhússtjórinn sífellt betri árangri bænda við ræktun.

Í fréttinni var rætt við Davíð Gestsson, sláturhússtjóra Sláturhúss KVH á Hvammstanga, en þar lauk slátrun sl. föstudag. 150 manns hafa unnið við slátrun á Hvammstanga frá því um mánaðamótin ágúst september. Heldur færri voru við slátrun þar nú en í fyrra, að mestu pólskir verkamenn. „Það helgast dálítið af því að fólk var ragt við að láta bólusetja sig og koma, en við mæltumst til þess að fólk myndi koma bólusett. En svona heilt yfir gekk þetta bara nokkuð vel, nokkuð góður mannskapur sem við höfum,“ sagði Davíð.

Samtals var 92.500 fjár slátrað á Hvammstanga og yfir 90 prósent af því lömb sem hann segir hafa verið talsvert vænni en í fyrrahaust og meðalvigtin því hærri. „Já, ég held að við séum að fara einhver 400 grömm yfir síðasta ár. Það þykir nokkuð gott.“

Sjá frétt á RÚV.is >

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir