Landsnet boðar til funda með landeigendum vegna Holtavörðuheiðarlínu 1

Landsnet
Landsnet

Í næstu viku hefur Landsnet boðað til funda með landeigendum vegna fyrirhugaðrar lagningu Holtavörðuheiðarlínu 1. Fundirnir verða tveir, annars vegar þann 1. júní að Hótel Hamri í Borgarnesi og seinni fundurinn að Hótel Glym í Hvalfirði þann 3. júní. Fundirnir hefjast kl: 20.00 og áætlað að ljúki um 22.00. Sama efni verður á báðum fundunum engin svæðisskipting einungis verið að gefa möguleika á tveimur dagsetningum og vali á fundarstað. Meginþema fundanna verður vinnustofa þar sem unnið verður með valkostagreiningu línuleiðar og einnig verða framsöguerindi sem tengjast því efni.

Landsnet vonast til að sjá sem flesta landeigendur á fundunum því mikilvægt er að fá inn álit sem flestra landeigenda og hagaðila. Á fundunum verða einnig starfsfólk frá ráðgjafastofunni Bembu og Verkfræðistofunni Verkís. Það verður boðið upp á kappi og meðlæti á fundunum og folk er beðið um skrá sig á fundina með því að senda nafn sitt á elins@landsnet.is og hvort það verða fleiri en einn fulltrúi landeigenda sem mæta á fundinn/fundina.

/SMH

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir