Dalbæingar eiga von á mildum janúar
Fyrsti fundur ársins hjá Veðurklúbbi Dalbæjar var haldin í gær í Betri stofu Dalbæjar, eftir því sem fram kemur í skeyti þeirra til fjölmiðla. Það sem skýrast er eftir nýliðið ár, segir í skeytinu, er hversu sannspáir félagar Veðurklúbbsins voru allt síðastliðið haust eins og auðséð er á fundargerðum ársins 2021.
„Og samkvæmt tunglkomu þann annan janúar síðastliðin þá eigum við hér norðan heiða áfram von á mildum vetri í janúar á meðan aðrir hlutar landsins eiga því miður ekki alveg sama láni að fagna. En þar sem eitthvað er ennþá laust af byggingalóðum hérna á Dalvík þá mælum við eindregið með því að þið sækið um lóð hér og fáið þannig notið með okkur veðurblíðunnar í sama mæli,“ segja spámennirnir kampakátir.
Annars segir að átta félagar Veðurklúbbsins að þessu sinni hafi rætt drauma, andleg málefni, hafís og margt annað og öll þau umræðuefni, og mörg fleiri, hafi tengst að sjálfsögðu veðrinu, enda spámönnum ekkert óviðkomandi í leit þeirra að traustum leiðum að réttustu veðurspám framtíðarinnar.
„Við kíktum reyndar líka á veðurþáttaspána á vedur.is og þau virðast alveg vera að standa sig með prýði enda yfirgnæfandi líkur á að þau þar styðjist við langtímaspár Veðurklúbbs Dalbæjar.“
Að venju er kvatt með fróðleiks- og veðurvísum.
Fornu fræðin finnast enn
Hjá fróðleiksmolum fullum
Því leiknir eru liðsins menn
Sem mata mig á gullum.
Höf. BJ./ Bjór.
En sú blíða allsstaðar
– auðar víða hlíðarnar.
Betra tíðar fæst ei far
– fram í líður janúar.
Höf:Ingimundur Gunnar Jörundsson
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.