Ástríður skipuð framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar

Ástríður Jóhannesdóttir. MYND AF HEIMASÍÐU STJÓRNARRÁÐSINS
Ástríður Jóhannesdóttir. MYND AF HEIMASÍÐU STJÓRNARRÁÐSINS

Á Húnahorninu er sagt frá því að Landskjörstjórn hefur skipað Ástríði Jóhannesdóttur lögfræðing í embætti framkvæmdastjóra Landskjörstjórnar en hún er Húnvetningur. Ástríður lauk embættisprófi frá lagadeild Háskóla Íslands árið 1998 og meistaraprófi frá Háskólanum í Konstanz í Þýskalandi árið 2000. Hún hefur sinnt margvíslegum störfum hjá opinberum aðilum og starfaði árin 2000-2008 hjá Fasteignamati ríkisins og 2008-2011 hjá efnahags- og viðskiptaráðuneytinu.

Í frétt Húnahorninsins segir: „Ástríður starfaði hjá Þjóðskrá Íslands árin 2011-2020, þar af sem sviðsstjóri stjórnsýslusviðs frá 2015. Frá maí 2021 hefur hún starfað hjá Vegagerðinni. Ástríður hefur í störfum sínum sinnt margvíslegum verkefnum sem tengjast framkvæmd kosninga. Þá hefur hún tekið virkan þátt í félagsstörfum og sinnt stundakennslu í lögfræði við lagadeild Háskóla Íslands og háskólann á Bifröst.

Landskjörstjórn var sett á fót í byrjun árs 2022 sem sjálfstæð stjórnsýslunefnd til þess að hafa yfirumsjón með framkvæmd kosninga og til að annast framkvæmd kosningalaga. Landskjörstjórn heyrir stjórnarfarslega undir ráðherra sem fer með málefni kosninga. Formaður landskjörstjórnar er Kristín Edwald, lögmaður en aðrir í landskjörstjórn eru: Ólafía Ingólfsdóttir og Hulda Katrín Stefánsdóttir, kosnar af Alþingi og Magnús Karel Hannesson og Ebba Schram, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir