VG og óháð í Skagafirði opna kosningaskrifstofu
feykir.is
Skagafjörður
22.04.2022
kl. 08.45
Í dag kl. 17:00 munu Vinstri græn og óháð í Skagafirði opna kosningaskrifstofu sína í húsnæði Þreksports, Borgarflöt 1. Allir eru velkomnir en meðal þeirra sem boða hafa komu sína er forsætisráðherra Íslands, formaður VG.
„Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mun heiðra okkur með nærveru sinni og heitt verður á könnunni,“ segir í tilkynningu frá flokknum.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.