Til mikils að vinna á umhverfisdegi FISK Seafood
Umhverfisdagur FISK Seafood verður haldinn þann 7. maí nk. í Skagafirði en áætlað er að tína rusl á strandlengjunni á Sauðárkróki, í Varmahlíð og á Hofsósi. Til mikils er að vinna því fyrirtækið greiðir 10.000 kr. á hvern einstakling sem tekur þátt, inn á reikning aðildarfélags eða deildar innan UMSS sem þátttakandi óskar.
Í tilkynningu FISK Seafood til forsvarsmanna aðildarfélaga og deilda UMSS segir að Umhverfisdagurinn sé samverustund fjölskyldunnar sem hefur það að markmiði að fegra nærumhverfið og styðja við aðildarfélög og deildir innan UMSS.
Byrjað verður að fegra umhverfið klukkan 10 og fram að hádegi en þá mun FISK Seafood bjóða öllum þátttakendum að þiggja veitingar í húsnæði FISK á Sauðárkróki sem nánar verður auglýst síðar.
Nauðsynlegt er að skrá hvern og einn þátttakenda, sem gert er í gegnum Google forms, sjá HÉR, fyrir miðvikudaginn 4. maí en að skráningu lokinni verður tekinn saman listi yfir þá einstaklinga sem ætla sér að mæta fyrir hvert aðildarfélag eða deild og þeim komið í hendurnar á forsvarsmönnum sem munu sjá um að merkja við þá sem mæta og taka þátt. Í ár mun FISK Sefood greiða 10.000 kr. á hvern einstakling sem tekur þátt, inn á reikning aðildarfélags eða deildar sem þátttakandi óskar eftir.
Það er því eftir miklu að slægjast fyrir félögin ekki síður en náttúruna og umhverfið sjálft.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.