Nú mótum við saman nýja sóknaráætlun fyrir Norðurland vestra

SSNV býður íbúa á Norðurlandi hjartanlega velkomna á vinnustofu og taka þátt í að móta nýja sóknaráætlun fyrir árin 2025 til 2029 en afurð vinnustofanna verður notuð við gerð nýrrar áætlunar fyrir Norðurland vestra. Sóknaráætlanir landshlutanna eru stefnumótandi áætlanir en í þeim sameinast íbúar um framtíðarsýn, markmið, forgangsröðun verkefna og leiðir til árangurs.
 
Við stefnum á að eiga góða stund saman þar sem íbúar fá tækifæri til að koma hugmyndum sínum og skoðunum á framfæri og hafa þannig áhrif, en samráð við íbúa er einn fjölmargra þátta sem nýttir eru við gerð sóknaráætlunar. Unnið verður með eftirfarandi stefnuáherslur á vinnustofunum:

Samstaða, jákvæðni og bjartsýni – Drifkraftur íbúa mótar samfélagið.

Aukin nýsköpun og fjölbreytt atvinnulíf – Öflugt atvinnulíf styður við lífsgæði á svæðinu.
Góður staður til að búa á – Blómlegt menningarlíf og fjölskylduvænt samfélag.
Landshluti í sjálfbærri uppbyggingu – Samfélag í forystu í umhverfismálum.

Fundir verða á eftirtöldum stöðum á svæðinu:

Félagsheimilið á Hvammstanga - 20. ágúst kl. 17:00 – 19:00.
Félagsheimilið á Blönduósi - 21. ágúst kl. 17:00 – 19:00.
Félagsheimilið Ljósheimar í Skagafirði - 22. ágúst kl. 17:00 – 19:00.

Barnahorn verður í boði fyrir börnin á meðan á fundum stendur og í lok funda verða grillaðar pylsur. Allir íbúar svæðisins eru velkomnir og frjálst er að mæta á alla fundina og/eða fund sem er ekki í þínu sveitarfélagi.

Skoðun allra skiptir máli!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir