Hleðslustöðvarnar í tjaldbúðum ULM vekja athygli
„Þetta er nýjung sem á engan sinn líka og setur ný viðmið á tjaldsvæðum framtíðarinnar,‟ segir Gunnar Þór Gestsson, tjaldbúðastjóri Unglingalandsmóts UMFÍ og formaður Ungmennasambands Skagafjarðar, um rafkerfið á tjaldsvæði mótsins. Gunnar Þór segir að hleðslustöðvarnar hafi slegið í gegn og allir sem hann hefur hitt séu mjög ánægðir með framtakið. Alls eru hleðslustöðvarnar sjö talsins og hver þeirra með tveimur tengjum.
„Rafhleðslustöðvarnar hafa vakið mikla undrun mótsgesta og trúa margir því vart að um spennistöð sé að ræða enda er hægt að hlaða 14 rafbíla á hleðslustöðvunum í einu,“ segir Gunnar en hann segir að sögur gangi þess efnis að um díselrafstöð sé að ræða. Svo er ekki.
Í frétt á vef UMFÍ er útskýrt að rafkerfi tjaldsvæðisins og hleðslustöðvar fyrir rafbíla séu tengdar spennistöð frá Rarik sem er á tjaldsvæðinu. Spennistöðin lítur út eins og gámur en er spennustöð sem liggur ofan á háspennulögn sem kemur frá Blönduvirkjun og liggur ofan við byggðina á Sauðárkróki út að verksmiðju Steinullar á Eyrinni. Gámurinn frá Rarik sækir rafmagn úr háspennulögninni og tengist rafhleðslustöðvunum frá HS Orku og rafkerfinu fyrir allan þann fjölda tjaldbúðagesta sem vill tengjast rafmagni.
Gunnar Þór bætir við að ótrúlega gott samstarf hafi tekist við uppsetningu spennistöðvarinnar og hleðslustöðvanna og vill hann koma á framfæri þakklæti, fyrir hönd UMSS og UMFÍ, til sveitarfélagsins Skagafjarðar, RARIK og Kaupfélags Skagfirðinga fyrir að gera þessa frábæru lausn mögulega.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.