Frábær leikhússkemmtun á Shrek!
Nemendur 10. bekkjar Árskóla á Sauðárkróki frumsýndu á fimmtudagskvöldið í Bifröst leikritið Shrek. Leikstjóri er Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir og aðstoðarleikstjóri er Eysteinn Ívar Guðbrandsson. Silla og Eysteinn eru jafnframt handritshöfundar en þau skrifuðu handritið upp úr fyrstu tveimur myndunum.
Leikritið fjallar í stuttu máli um tröllið Shrek sem við þekkjum úr samnefndri kvikmynd sem vill helst vera einn í mýrinni sinni, það breytist aðeins þegar hann fær ævintýraverur í heimsókn og hann ákveður að fara og bjarga Fíónu prinsessu frá dreka svo að ævintýraverurnar verði fluttar annað. Málglaður asni fylgir honum og saman lenda þeir í ýmsu.
Nánast uppselt var á frumsýninguna og var sýningin mjög skemmtileg og ekki að sjá annað en að allir í salnum skemmtu sér mjög vel, jafnt ungir sem aldnir og því óhætt að mæla með sýningunni fyrir allan aldurshóp. Leikhópurinn á hrós skilið fyrir skemmtilega uppfærslu. Yfir 20 persónur eru í sýningunni en sumir leika fleiri en eitt hlutverk. Krakkarnir skiluðu hlutverkum sínum öll vel, voru flest öll skýr í tali og pössuðu að tala ekki ofan í hlátur úr salnum því mörg atriði í leikritinu eru mjög fyndin. Leikgleðin skilaði sér vel út í sal sem er mjög mikilvægt og skapaði góða stemmingunni í salnum.
Sýningin er mátulega löng og atriðin eru frekar stutt og alltaf nóg af skemmtilegum hlutum að gerast á sviðnu. Sviðsskiptingar á milli atriða gengu vel og trufluðu ekki eins og stundum gerist ef þær eru langar eða flóknar. Aftast á sviðinu birtist nokkrum sinnum brot úr myndunum á skjá sem er skemmtilegt uppbrot. Einnig eru dansatriði í sýningu mjög skemmtileg og vel útfærð. Mikil og góð vinna hefur líka verið lögð í alla baksviðsvinnu. Leikmyndin er alls ekki flókin en kemur vel út og er vel gerð, búningarnir eru litríkir og flottir og gefur sýningunni flotta mynd. Leikmunir voru flottir, sminkið vel gert og tæknivinna bæði ljós og hljóð voru mjög vel útfærð.
Eins og áður hefur komið fram skiluðu allir sínum hlutverkum mjög vel hvort sem um stór eða minni hlutverk voru að ræða og erfitt að fara velja úr hópnum en verð þó að nefna: Haraldur sem asninn og Sindri sem Gosi stálu oft senunni með góðum leik, Jörundur/Shrek 1, Fannar/ Skrek 2 og Sylvía/ Fíona 1, Rebekka/Fíóna 2 skiluðu sínum hlutverkum vel og útfærslan á breytingu 1 og 2 var skemmtileg. Hákon og Jón Gabríel voru skemmtilegir í sínum hlutverkum sem og Alexander, Louisa, Klara og Veigar.
Að lokum langar mig að óska Sillu, Eysteini, krökkunum öllum og starfsfólki Árskóla innilega til hamingju með flotta, fallega og fyndna sýningu sem hefur verið mikið í lagt bæði innan sviðs sem utan. Takk fyrir frábæra skemmtun og mæli með að fólk láti ekki þessa sýningu framhjá sér fara.
/Sigurlaug Dóra Ingimundardóttir
HÉR er hægt að sjá smá kynningarmyndbrot af Shrek.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.