Álfhildur leiðir VG og óháð í Skagafirði
feykir.is
Skagafjörður
05.04.2022
kl. 10.59
Sex efstu á lista VG og óháðra í Skagafirði: Aftari röð f.v.: Hrólfur Þeyr Hlínarson, Auður Björk Birgisdóttir og Steinunn Rósa Guðmundsdóttir. Neðriröð f.v.: Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir, Álfhildur Leifsdóttir og Pétur Örn Sveinsson. Aðsendar myndir.
V listi, Vinstri grænna og óháðra í Skagafirði var samþykktur á félagsfundi VG í félagsheimilinu í Hegranesi í gærkvöldi. Þetta mun vera ellefti VG listinn sem lítur dagsins ljós fyrir kosningarnar 14. maí í vor. Álfhildur Leifsdóttir, grunnskólakennari og sveitarstjórnarfulltrúi og Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir, tómstunda- og félagsmálafræðingur leiða listann, í þriðja sæti er Pétur Örn Sveinsson, tamningamaður og bóndi.
Listinn er eftirfarandi:
- Álfhildur Leifsdóttir, grunnskólakennari
- Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir, tómstunda-og félagsmálafræðingur
- Pétur Örn Sveinsson, tamningamaður og bóndi
- Steinunn Rósa Guðmundsdóttir, ráðgjafi
- Auður Björk Birgisdóttir, hárgreiðslumeistari
- Hrólfur Þeyr Hlínarson, búfræðinemi og fjósamaður
- Tinna Kristín Stefánsdóttir, meistaranemi í lögfræði
- Árni Gísli Brynleifsson, þjónustufulltrúi
- Hildur Þóra Magnúsdóttir, Framkvæmdastjóri
- Úlfar Sveinsson, bóndi
- Inga Katrín Magnúsdóttir, þjóðfræðingur og menntunarfræðingur
- Arnar Bjarki Magnússon, útgerðarmaður og bóndi
- Ólína Björk Hjartardóttir, atvinnurekandi
- Jón Gunnar Helgason, húsfaðir og smiður
- Páll Rúnar Heinesen Pálsson, starfsmaður í búsetukjarna í Skagafirði
- Helga Rós Indriðadóttir, söngkona og tónlistarkennari
- Valdimar Sigmarsson, bóndi
- Bjarni Jónsson, alþingismaður
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.