Vel mætt á jólahlaðborð Rótarý

Góð stemning var í íþróttahúsinu á Sauðárkróki í hádeginu í dag en þangað hafði Rótarýklúbbur Sauðárkróks boðið fjölda fólks og þiggja ókeypis jólahlaðborð. Viðburðurinn var ætlaður sem samfélags- og styrktarverkefni og komu mörg fyrirtæki að verkefninu með Rótarýmönnum. Auk þess að þiggja vel útilátinn jólamatinn nutu gestir tónlistar ungra Skagfirðinga sem sannarlega stóðu fyrir sínu. Þá las Guðni Ágústsson fyrrverandi landbúnaðarráðherra og hinn ættleiddi sonur Skagafjarðar upp úr nýjustu bók sinni sem ætti að kæta hvern lesenda.

Hér fyrir neðan eru myndir frá þessari ágætu stund.

.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir