Króksbrautarhlaup í kostaveðri

Síðast liðinn laugardag fór fram hið árlega Króksbrautarhlaup sem markar lok sumarstarfs skokkhópsins á Sauðárkróki. Hlaupið var á brautinni milli Sauðárkróks og Varmahlíðar og var misjafnt hvaða vegalengd fólk valdi sér, reyndar hafði fólk val um það hvernig það kæmi sér milli staða og hjóluðu sumir og aðrir gengu.

Veðrið lék við þátttakendur sem var með allra besta móti svo útiveran var eftirsóknarverðari en verið hefur undanfarnar vikur. Feykir var með myndavélina og náði að festa nokkrar hetjur á filmu sem með þátttöku sinni styrktu gott málefni en að þessu sinn fær Stefán Jökull Jónsson og fjölskylda að njóta afraksturs hlaupsins.

.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir