Brugðið á leik á Íþróttadegi Árskóla

Mikið fjör og kátína ríkti í íþróttahúsinu á Sauðárkróki í gær þegar hin árlega Íþróttahátíð Árskóla fór fram en þar komu allir bekkir skólans saman og brugðu á leik. Krakkarnir spreyttu sig við hinar ýmsu íþróttagreinar og kepptu bæði innbyrðis eða við kennara og starfsfólk skólans en þar voru einnig nokkrir leikmenn úr körfuboltaliði Tindastóls mættir til leiks.

Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum skemmtu allir krakkar, sem fullorðnir, sér konunglega og endaði hátíðin með árvissum körfuboltaleik kennara og 10. bekkinga og er óhætt að segja að þar mættust stálin stinn. En niðurstaðan var sú að lið kennara lögðu lið 10. bekkinga að velli eftir hörku leik.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir