108 myndir frá Króksmótinu
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Íþróttir, Ljósmyndavefur, Vestur-Húnavatnssýsla
13.08.2012
kl. 00.43
Tuttugasta og fimmta Króksmóti Tindastóls og FISK Seafood lauk seinni partinn í dag og óhætt að fullyrða að vel hafi til tekist. Það var heilmikið fjör á völlunum og góð stemning hjá áhorfendum og stuðningsmönnum liðanna sem þátt tóku í mótinu.
Veðrið fór batnandi eftir því sem leið á daginn og var blíðskaparveður þegar mótinu lauk. Hægt er að nálgast úrslit og aðrar upplýsingar um mótið á heimasíðu Króksmóts. Ljósmyndari Feykis var á vappi með myndavélina og hér fyrir neðan eru 108 myndir frá Króksmóti 2012 í viðbót við þær 76 sem fóru á netið á laugardaginn.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.