Stelpurnar í hörkuslag í bikarnum

Stelpurnar í meistaraflokki Tindastóls taka á móti Fylki í 16 liða úrslitum Borgunarbikarsins klukkan 19:15 í kvöld. Ljóst er að stelpurnar munu eiga við erfiða andstæðinga þar sem  Fylkisstelpur leika í Pepsideildinni deild ofar en Stólastúlkur.

Tindastólsstelpur slógu Völsung út í 32 liða úrslitum í flottum leik þar sem Kolbrún Ósk, Bryndís Rún og Madison Cannon sáu um markaskorun fyrir okkar stelpur en leikurinn endaði 3-1.

Allir eru hvattir til að fjölmenna á völlinn og styðja stelpurnar til sigurs.
Áfram Tindastóll!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir