Snjólaug María íþróttamaður ársins og Fram hlýtur hvatningarverðlaun

Snjólaug María Jónsdóttir, Skotfélaginu Markviss, tók við tilnefningu til Íþróttamanns ársins. Mynd/FB-síða USAH
Snjólaug María Jónsdóttir, Skotfélaginu Markviss, tók við tilnefningu til Íþróttamanns ársins. Mynd/FB-síða USAH

Í gær, sunnudaginn 13. mars, fór fram á Húnavöllum 99. ársþing USAH. Samkvæmt Facebook-síðu USAH mættu 32 fulltrúar frá aðildarfélögunum á þingið, auk þeirra mættu tveir gestir, Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ og Þórey Edda Elísdóttir, fulltrúi ÍSÍ. „Var þingið nokkuð starfssamt og umræður þónokkrar,“ segir um þingið á síðunni. Fjórar tillögur lágu fyrir á þinginu sem allar voru samþykktar eftir breytingar í nefndum.

Mál sem meðal annars komu upp á þinginu voru Húnavökuritið og Stefnumótun USAH. „Húnavökuritið, ákveðið hefur verið að gera tilraun með dreifingu og sölu ritsins, verður hún send á öll heimili í sýslunni auk þeirra sem voru áskrifendur fyrir og í Húnvetningafélagið í Reykjavík. Mun hún með þessu móti lækka í verði en dreifast á fleiri heimili og vonumst við til að þessi tilraun takist vel og auki áhuga ungs fólks að skoða ritið,“ segir á vefnum.   

Á 98. ársþingi USAH var ákveðið að stefnt yrði að því að vinna í stefnumótun USAH og voru Auðunn Sigurðsson, Sigríður Gestsdóttir og Steinunn Hulda Magnúsdóttir skipuð í stefnumótunarnefnd. Á þinginu voru kynnt niðurstöður þeirra vinnu. Eftir þing og fram í október mun stjórn USAH og aðildarfélög fara yfir hana og skila inn athugasemdum sem áfram skipuð stefnumótunarnefnd mun vinna í fyrir næsta þing. Þá mun vonandi liggja fyrir tillaga að stefnumótun USAH, samkvæmt því sem segir á síðunni. 

Þórey Edda Elísdóttir, fulltrúi ÍSÍ, ávarpaði þingið og minnti á ýmis góð málefni sem gott væri að íhuga, svosem meira samstarf milli USAH og USVH, verkefni sem eru í gangi, t.d. hjólað í vinnuna og lífshlaupið sem henni finnst endilega að við þurfum að reyna að virkja í Húnavatnssýslum og reyna að koma upp einhverri keppni á milli og reyna að virkja bæði börn sem fullorðna í að hreyfa sig og lifa heilbrigðu lífi. Að ávarpi loknu veitti hún Aðalbjörgu Valdimarsdóttir gullmerki ÍSÍ og Hafdísi Vilhjálmsdóttur silfurmerki ÍSÍ, einnig fékk Valgerður Hilmarsdóttir silfurmerki ÍSÍ en var hún ekki á staðnum. 

Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ, ávarpaði þingið og ræddi einnig um mörg verkefni sem eru í gangi í samfélaginu, svo sem Hreyfivikuna sem verður í maí. Þakkaði hann fyrir starf USAH við Landsmót 50+. Hann vildi ekki síður þakka sveitarfélögunum sem stóðu að mótinu fyrir sinn stuðning, hann hafi verið ómetanlegur og án þeirra væri ekki hægt að halda svona mót.  

Minnti hann á Unglingalandsmótið sem haldið verður í Borgarnesi í sumar, Landsmót 50+ sem haldið verður á Ísafirði í byrjun sumars og Landsmótið, sem ákveðið hefur verið að halda á Sauðárkróki árið 2018. Að ávarpi loknu veitti hann Hafdísi Vilhjálmsdóttur og Pétri Péturssyni starfsmerki UMFÍ og Aðalbjörgu Valdimarsdóttur gullmerki UMFÍ.

Fram fagnar 90 ára afmæli

Íþróttamaður ársins 2015 hjá USAH var Snjólaug María Jónsdóttir, úr Skotfélaginu Markviss. „Hún hefur staðið sig afskaplega vel á síðastliðnu ári í haglagreininni Ólympískt Skeet. Snjólaug keppti á sínu fyrsta móti erlendis á árinu og setti þar glæsilegt Íslandsmet, sem er aðeins fimm stigum frá Ólympíulágmarkinu, fór hún upp um tvo flokka í sinni grein á tímabilinu og er fyrst kvenna hérlendis frá upphafi til að ná fyrsta flokks skori í þessari skotgrein,“ segir á síðunni. 

Hvatningarverðlaun USAH hlaut ungmennafélagið Fram, Baldur Magnússon tók við bikarnum og blómum.

Hvatningarverðlaun USAH, sem fyrrum formenn USAH gáfu á 100 ára afmæli sambandsins og á að veita árlega, voru veitt í fjórða sinn og var það ungmennafélagið Fram sem hlaut bikarinn. „Fram hefur ávallt staðið sig vel í barna og unglingastarfi, þau reyna að hafa fjölbreytni til staðar og að börn geti notið sín og haft gaman í þeirri íþrótt sem þau ákveða að iðka,“ segir um verðlaunaafhendinguna. Ungmennafélagið Fram fagnar á þessu ári sínu 90 ára afmæli og fengu platta og blóm í tilefni afmælisins.

Breyting var á stjórn USAH, Aðalbjörg Valdimarsdóttir, formaður, og Hafdís Vilhjálmsdóttir, varaformaður, gáfu ekki kost á sér áfram og Valgerður Hilmarsdóttir, gjaldkeri, hætti í stjórn. Guðrún Sigurjónsdóttir gaf kost á sér áfram sem meðstjórnandi og Sigrún Líndal situr sitt annað ár sem ritari. 

Stjórn USAH skipa nú þau:

  • Rúnar Pétursson, formaður.
  • Steinunn Hulda Magnúsdóttir, varaformaður.
  • Guðrún Sigurjónsdóttir, meðstjórnandi.
  • Sigrún Líndal, ritari.
  • Katrín Hallgrímsdóttir, gjaldkeri.

Myndir frá þinginu má skoða á síðu USAH. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir