Nýr formaður frjálsíþróttadeildar

Sigurjón býður Margréti velkomna til embættis. Mynd: Tindastóll.is.
Sigurjón býður Margréti velkomna til embættis. Mynd: Tindastóll.is.

Formannaskipti urðu á aðalfundi frjálsíþróttadeildar Tindastóls sem haldinn var þann 26. apríl sl. Margrét Arnardóttir var kjörin formaður í stað Sigurjóns Leifsson, sem ekki bauð kost á sér áfram en hann hefur gegnt  formennsku frá árinu 2010.

Þær Kolbrún Þórðardóttir og Thelma Knútsdóttir voru einnig kjörnar í stjórn deildarinnar í stað þeirra Guðrúnar Ottósdóttur og Hafdísar Ólafsdóttur sem gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarstarfa. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir