Bætti sinn fyrri árangur í sjöþraut um 256 stig

Ísak Óli, Ingi Rúnar, Tristan Freyr, og Ari Sigþór eftir MÍ. (Mynd FRÍ).
Ísak Óli, Ingi Rúnar, Tristan Freyr, og Ari Sigþór eftir MÍ. (Mynd FRÍ).

Ísak Óli Traustason, frjálsíþróttamaður hjá UMSS, keppti um helgina í sjöþraut karla á skoska meistaramótinu í fjölþrautum sem fram fór í Glasgow. Auk Ísaks kepptu í þrautinni þeir Tristan Freyr Jónsson ÍR, og Blikarnir Ingi Rúnar Kristinsson og Ari Sigþór Eiríksson, en þessir kappar urðu í fjórum fyrstu sætunum á Meistaramóti Íslands í fjölþrautum í lok janúar sl.

Á heimasíðu Tindastóls segir að Ísak Óli hafi staðið sig vel á fyrri degi þrautarinnar.  Hann hlaut samtals 2794 stig úr greinunum fjórum, 110 stigum meira, en þegar hann vann bronsið á MÍ í janúar. Árangur hans í einstökum greinum var: 60  m hlaup 7,17 sek, sem er persónuleg bæting, langstökk 6,87 m, kúluvarp 11,53 m, hástökk 1,78 m.

Skagfirðingurinn Tristan Freyr Jónsson, (Huldu Skúladóttur og Jóns Arnars Magnússonar), meiddist í langstökkskeppninni og hætti keppni.

Seinni keppnisdag lauk Ísak Óli keppni í þrautinni með glæsibrag en hann hlaut samtals 4929 stig og bætti sinn fyrri árangur í sjöþraut um 256 stig. Árangur hans í einstökum greinum var: 60 m grindahlaup 8,44 sek, stangarstökk 3,67 m (pm) og 1000 m hlaup 2:53.00 mín (pm).  

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir