Tíu í framboði í póstkosningu Framsóknar í Norðvesturkjördæmi
Tíu sækjast eftir því að komast á lista Framsóknar í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningar 2021 en póstkosning verður haldin dagana 16. febrúar - 13. mars nk. Þar verður kosið um fimm efstu sæti á lista flokksins.
Þau tíu sem sækjast eftir kosningu í ákveðin sæti eru:
Stefán Vagn Stefánsson, forseti sveitarstjórnar í Skagafirði 1. sæti
Guðveig Eyglóardóttir, sveitarstjórnarmaður í Borgarbyggð 1.-2. sæti
Halla Signý Kristjánsdóttir, alþingismaður í Bolungarvík 1.-2. sæti
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, formaður SUF 2. sæti
Iða Marsibil Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar í Vesturbyggð 2.-3. sæti
Gunnar Tryggvi Halldórsson, sveitarstjórnarmaður Blönduós 3. sæti
Friðrik Már Sigurðsson, verkefnastjóri og sveitarstjórnarfulltrúi, Húnaþingi vestra 3.-4.sæti
Gunnar Ásgrímsson, háskólanemi á Sauðárkróki 5. sæti
Ragnheiður Ingimundardóttir, verslunarmaður í Strandabyggð 5.-6. sæti
Tryggvi Gunnarsson, skipsstjóri frá Flatey 3.-5 sæti
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.