Þrjú stór mál sem þarf að ræða
Unnur Valborg Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, segir í viðtali á N4 mikilvægt að samgöngumál, umhverfismál og atvinnumál með áherslu á nýsköpun verði áberandi í umræðunni í aðdraganda væntanlegra alþingiskosninga í haust. Unnur segir að þörf sé á stórauknum stuðningi af hálfu ríkisvaldsins til að styrkja átak sveitarfélaganna á starfssvæði samtakanna, svo sem á formi uppbyggingar innviða og ívilnana.
Unnur segir samgöngumálin hafa verið eitt af stærstu baráttumálum landshlutans undanfarin ár og verði það klárlega áfram. Landshlutinn hafi hæsta hlutfall malarvega á landinu og hafi um langa hríð verið sveltur af framkvæmdum. Unnur segir ástandið víða orðið þannig að stórhætta stafi af. Árið 2019 var á vegum SSNV unnin samgöngu- og innviðaáætlun fyrir landshlutann þar sem verkefnum er forgangsraðað á landshlutann í heild og innan hvers sveitarfélags. „Heimavinnan hefur því verið unnin og áherslur landshlutans skýrar – nú er komið að ráðamönnum að tryggja fjármagn svo ganga megi til framkvæmda," sagði Unnur.
Atvinnumál og nýsköpun eru jafnframt eitt af mikilvægustu verkefnunum að mati Unnar. Í því felist stuðningur við atvinnuuppbyggingu og nýsköpun á svæðinu til að stuðla að fjölgun íbúa og bættu atvinnustigi. „Störfin verða að vera til staðar til þess að íbúafjölgun eigi sér stað. Þarna undir fellur m.a. fjölgun opinberra starfa og störf án staðsetningar. Líka stuðningur við að laða stærri fjárfestingaverkefni inn í landshlutann. Á síðasta ári var ráðinn sérstakur starfsmaður til SSNV sem hefur það sem meginmarkmið en þörf er á stórauknum stuðningi af hálfu ríkisvaldsins til að styrkja það átak sveitarfélaganna á starfssvæði samtakanna, svo sem á formi uppbyggingar innviða og ívilnana.“
Unnur segir að umhverfismálin hafi á undanförnum árum fengið mun meira vægi og sífellt séu meiri kröfur gerðar til sveitarfélaga hvað þau varðar með tilheyrandi viðbótarkostnaði. Því sé mikilvægt að sveitarfélögin fái stuðning til að mæta þessum kröfum. „Þarna má t.d. nefna úrgangsmál sem eru mörgum sveitarfélögum krefjandi og kostnaðarsamt verkefni. Jafnframt snýr þetta að regluverki málaflokksins en oft eru settar reglugerðir sem ómögulegt er fyrir sveitarfélög að mæta miðað við innviði landsins. Markmið um kolefnishlutleysi vega einnig þungt en þeim tengjast verkefni orkuskipta, fullvinnslu og fullnýtingu afurða og fleira sem mikilvægt er að sveitarfélög fái stuðning við til að metnaðarfull markmið landsins alls náist,“ segir Unnur Valborg Hilmarsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra í viðtali við N4.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.